From Wikipedia, the free encyclopedia
Geðrof er ástand þar sem einstaklingur á erfitt með að greina hvað sé raunverulegt. Oftast koma fram ranghugmyndir, ofskynjanir, skert raunveruleikatengsl, og stundum ruglingslegt tal og undarleg hegðun. Svefnvandamál, félagsleg einangrun, og áhugaleysi eru algeng.[2]
Sumir fara aðeins einu sinni í geðrof, sumir fá nokkur köst yfir ævina. Hjá sumum koma geðrofseinkenni fram aftur og aftur og flokkast sjúkdómurinn þá undir geðklofa.[3]
Orsakir geðrofs geta verið margvíslegar: Geðsjúkdómar (geðklofi, geðhvarfasýki, þunglyndi, jaðarpersónuleikaröskun), sálræn áföll, svefnskortur, elliglöp, sum lyf, og sum vímuefni líkt og áfengi, kannabis, kókaín, amfetamín, LSD, og ketamín. Koffín getur gert einkenni verri hjá þeim sem eru með geðklofa.[4] Um 0,1% af nýbökuðum mæðrum fer í geðrof.[5]
Geðrof eru meðhöndluð með geðrofslyfjum, sálfræðimeðferð, og með félagslegum stuðningi. Um 3% fólks fer í geðrof einhvern tímann á ævinni.[2] Talið er að ofvirkni taugaboðefnisins dópamíns eigi þátt í geðrofi, það sem styður þá kenningu er helst það að geðrofslyf virka með því að hemja dópamínviðtaka, og þau lyf og vímuefni sem auka magn dópamíns við taugaviðtaka geta valdið geðrofi.[6]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.