George H. W. Bush
41. forseti Bandaríkjanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þessi grein fjallar um forseta Bandaríkjanna frá 1989–1993. Sjá George W. Bush fyrir greinina um son hans, forseta Bandaríkjanna frá 2001–2009
George Herbert Walker Bush (12. júní 1924 – 30. nóvember 2018) var 41. forseti Bandaríkjanna frá 20. janúar 1989 til 20. janúar 1993 fyrir repúblikana og þar áður varaforseti Bandaríkjanna í forsetatíð Ronalds Reagan. Hann er faðir George W. Bush, sem varð 43. forseti Bandaríkjanna. Eitt af stærstu verkefnum ríkisstjórnar hans var Persaflóastríðið 1990 til 1991 í kjölfar innrásar Íraks í Kúveit, en sú tilfinning almennings í Bandaríkjunum fyrir því að hann hefði ekki lokið því með sæmd átti þátt í því að hann náði ekki endurkjöri 1992.
Staðreyndir strax Forseti Bandaríkjanna, Varaforseti ...
George H. W. Bush | |
---|---|
Forseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1989 – 20. janúar 1993 | |
Varaforseti | Dan Quayle |
Forveri | Ronald Reagan |
Eftirmaður | Bill Clinton |
Varaforseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 19. janúar 1981 – 20. janúar 1989 | |
Forseti | Ronald Reagan |
Forveri | Walter Mondale |
Eftirmaður | Dan Quayle |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 12. júní 1924 Milton, Massachusetts, Bandaríkjunum |
Látinn | 30. nóvember 2018 (94 ára) Houston, Texas, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Barbara Pierce (g. 1945; d. 2018) |
Börn | 6; þ. á m. George og Jeb |
Háskóli | Yale-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka