![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/12/Bundesarchiv_Bild_183-2004-0720-500%252C_Georg_Michaelis.jpg/640px-Bundesarchiv_Bild_183-2004-0720-500%252C_Georg_Michaelis.jpg&w=640&q=50)
Georg Michaelis
Kanslari Þýskalands (1857-1936) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Georg Michaelis (8. september 1857 – 24. júlí 1936) var kanslari Þýskalands í nokkra mánuði árið 1917 á meðan fyrri heimsstyrjöldin var í fullum gangi. Hann var fyrsti kanslari Þýskalands sem ekki var af aðalsættum. Michaelis var þekktur úr athafnalífinu og sem kanslari var helsta afrek hans að hvetja yfirstéttirnar til að sækjast eftir friði við Rússland, sem leiddi til þess að friðarsáttmáli við Rússa var undirritaður nokkrum mánuðum eftir að hann lét af embættinu. Michaelis grunaði að stríðslok væru í nánd og ýtti því undir þróun á innviðum landsins til þess að hraða viðreisn Þýskalands þegar friðurinn kæmi. Michaelis þótti alvörugefinn og illa í stakk búinn til að takast á við vandamálin sem steðjuðu að Þýskalandi á stuttri kanslaratíð sinni.
Georg Michaelis | |
---|---|
![]() | |
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 14. júlí 1917 – 1. nóvember 1917 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 2. |
Forveri | Theobald von Bethmann-Hollweg |
Eftirmaður | Georg von Hertling |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. september 1857 Haynau, Sílesíu, Prússlandi (nú Póllandi) |
Látinn | 24. júlí 1936 (78 ára) Bad Saarow, Brandenborg, Þýskalandi |
Þjóðerni | Þýskur |
Maki | Margarete Schmidt |
Börn | Elisabeth, Charlotte, Emma, Georg Sylvester, Wilhelm, Eva, Martha |
Háskóli | Georg-August-háskólinn í Göttingen |