Knattspyrnufélagið Fram
fjölíþróttafélag í Reykjavík / From Wikipedia, the free encyclopedia
Knattspyrnufélagið Fram, Fram Reykjavík eða einfaldlega Fram er íslenskt íþróttafélag staðsett í Reykjavík. Félagið er eitt elsta íþróttafélag Íslands. Það var stofnað 1. maí 1908. Núverandi formaður félagsins er Sigríður Elín Guðlaugsdóttir. Fram heldur úti æfingum í knattspyrnu, handbolta, taekwondo og skíðagreinum. Þá er starfrækt innan félagsins almenningsíþróttadeild og sérstakur hópur Framkvenna. Innan Fram hafa einnig verið starfræktar körfuknattleiksdeild og blakdeild.
- Fyrir skipið sem heimsótti norður- og suðurskaut, sjá Fram (skip).
Staðreyndir strax Gælunafn/nöfn, Stofnað ...
Knattspyrnufélagið Fram | |||
Fullt nafn | Knattspyrnufélagið Fram | ||
Gælunafn/nöfn | Framarar | ||
---|---|---|---|
Stofnað | 1. maí 1908 | ||
Leikvöllur | Framvöllur, Úlfarsárdal | ||
Stærð | 1.650 | ||
Stjórnarformaður | Sigríður Elín Guðlaugsdóttir | ||
Knattspyrnustjóri | Rúnar Kristinsson (karlalið); Óskar Smári Haraldsson (kvennalið) | ||
Deild | Úrvalsdeild karla | ||
2023 | 10. sæti | ||
|
Loka