Fiskifræði
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fiskifræði er undirgrein dýrafræðinnar sem fæst við rannsóknir á fiskum, þar á meðal beinfiskum, brjóskfiskum (t.d. hákörlum og þvermunnum) og vankjálkum. Fiskifræði er nátengd haffræði og sjávar- og vatnalíffræði. Þeir sem leggja stund á greinina kallast fiskifræðingar. Innan fiskifræðinnar er ákveðin sérgrein sem nefnist stofnstærðarfræði.