![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b4/Kaiser_Ferdinand_I_von_%25C3%2596sterreich_in_ungarischer_Adjustierung_mit_Ordensschmuck_c1830.jpg/640px-Kaiser_Ferdinand_I_von_%25C3%2596sterreich_in_ungarischer_Adjustierung_mit_Ordensschmuck_c1830.jpg&w=640&q=50)
Ferdinand 1. Austurríkiskeisari
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ferdinand 1. (19. apríl 1793 – 29. júní 1875) var keisari Austurríkis frá árinu 1835 þar til hann sagði af sér árið 1848. Sem þjóðhöfðingi Austurríkis var hann einnig forseti þýska ríkjasambandsins, konungur Ungverjalands, Króatíu, Bæheims (sem Ferdinand 5.) og Langbarðalands-Feneyja auk ýmissa annarra titla sem hann bar.
| ||||
Ferdinand 1. | ||||
Ríkisár | 2. mars 1835 – 2. desember 1848 | |||
Skírnarnafn | Ferdinand Karl Leopold Joseph Franz Marcellin | |||
Fæddur | 19. apríl 1793 | |||
Vín, Austurríki, Heilaga rómverska ríkinu | ||||
Dáinn | 29. júní 1875 (82 ára) | |||
Prag, Bæheimi, Austurríki-Ungverjalandi | ||||
Gröf | Keisaragrafhýsinu í Vín | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Frans 1. | |||
Móðir | María Teresa af Napólí og Sikiley | |||
Keisaraynja | María Anna af Savoju |
Ferdinand settist á keisarastól eftir dauða föður síns, Frans 1. Austurríkiskeisara, þann 2. mars 1835. Ferdinand gat ekki ráðið yfir veldi sínu vegna þroskagalla. Faðir hans mælti því svo fyrir í erfðaskrá sinni að Ferdinand ætti að ráðfæra sig við Loðvík erkihertoga í öllum innanríkismálum og Metternich fursta í utanríkismálum.[1]
Í kjölfar byltinganna árið 1848 sagði Ferdinand af sér þann 2. desember. Við honum tók bróðursonur hans, Frans Jósef. Eftir afsögn sína bjó Ferdinand í Hradčany-höll í Prag til dauðadags árið 1875.[2]
Ferdinand var kvæntur Maríu Önnu af Savoju, sjötta barni Viktors Emmanúels 1. af Sardiníu. Þau eignuðust engin börn.