![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6f/Eugene_Terreblanche_%2528386542672%2529.jpg/640px-Eugene_Terreblanche_%2528386542672%2529.jpg&w=640&q=50)
Eugene Terre'Blanche
From Wikipedia, the free encyclopedia
Eugène Ney Terre'Blanche (31. janúar 1941 – 3. apríl 2010) var afríkanskur Búi sem stofnaði samtökin Afrikaner Weerstandsbeweging (AWB) á tímum aðskilnaðar hvítra og svartra í Suður Afríku. Þau börðust hatrammlega gegn afnámi aðskilnaðarstefnunnar og hótuðu borgarastyrjöld í aðdraganda fyrstu frjálsu kosninganna í landinu. Terre'Blanche var um aldamótin dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir morðtilraun og afplánaði þrjú ár af dómnum. Allt til dauðadags var hann leiðtogi AWB og þrýsti á um sérstakt ríki hvítra Búa innan Suður-Afríku.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6f/Eugene_Terreblanche_%28386542672%29.jpg/320px-Eugene_Terreblanche_%28386542672%29.jpg)