![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b0/Tour_Eiffel_-_20150801_15h30_%252810621%2529.jpg/640px-Tour_Eiffel_-_20150801_15h30_%252810621%2529.jpg&w=640&q=50)
Eiffelturninn
turn í París í Frakklandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Eiffelturninn er járnturn á Champ de Mars París á vinstri bakka árinnar Signu. Er hæsta bygging í París og eitt af þekktustu kennileitum í heiminum. Turninn er nefndur eftir hönnuðinum, Gustave Eiffel og er frægur ferðamannastaður. Eiffelturninn var byggður fyrir heimsýninguna í París árið 1889 og er 324 metrar að hæð og vegur 7300 tonn. Mögulegt er að ganga hluta leiðarinnar upp í turninn eða 1660 þrep en taka verður lyftur til þess að komast á toppinn.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/52/Paris_-_Eiffelturm_-_frontal_vom_Marsfeld.jpg/640px-Paris_-_Eiffelturm_-_frontal_vom_Marsfeld.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b0/Tour_Eiffel_-_20150801_15h30_%2810621%29.jpg/640px-Tour_Eiffel_-_20150801_15h30_%2810621%29.jpg)
Í frétt í vestur-íslenska vikublaðinu Lögbergi var sagt frá því árið 1911 að Frakkar væri að hugsa um að nota Eiffelturninn sem haglhlíf fyrir Parísarborg:
- Með því að senda út frá turninum rafmagnsstraum er ætlast til að verja megi borgina á tuttugu mílna löngu sviði allt umhverfis fyrir hagli, rétt eins og sólhlíf hlífir manni við sólargeislunum það sem hún nær til.[1]