Edmund Husserl
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Edmund Gustav Albrecht Husserl (8. apríl 1859, Prostějov – 26. apríl 1938, Freiburg) var þýskur heimspekingur, sem er þekktur sem „faðir“ fyrirbærafræðinnar.
Edmund Gustav Albrecht Husserl | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. apríl 1859, Prostějov (í Tékkóslóvakíu, þá í Austurríki-Ungverjalandi) |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 20. aldar |
Skóli/hefð | Meginlandsheimspeki, fyrirbærafræði |
Helstu viðfangsefni | þekkingarfræði, stærðfræði |
Husserl fæddist inn í gyðingafjölskyldu í Prostějov (Prossnitz) í Moravíu í Tékkóslóvakíu (sem var þá hluti af Austurríki-Ungverjalandi). Hann var nemandi Franz Brentano og Carl Stumpf en hafði síðar mikil áhrif á Edith Stein, Eugen Fink, Martin Heidegger, Jean-Paul Sartre og Maurice Merleau-Ponty meðal annarra. Árið 1887 gerðist hann kristinn mótmælandi. Hann kenndi heimspeki í Halle frá 1887, þá í Göttingen sem prófessor frá 1901 og að lokum í Freiburg im Breisgau frá 1916 til 1928 þegar hann settist í helgan stein. Hann hélt þó áfram að fást við og skrifa um heimspeki og nota bókasafnið í Freiburg þar til honum var meinað að gera það vegna gyðinglegs uppruna síns.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.