Eðlisfræðin
From Wikipedia, the free encyclopedia
Eðlisfræðin (gjarnan þekt undir latneska titlinum Physica) er mikilvægt rit í átta bókum eftir forngríska heimspekinginn Aristóteles. Líkt og önnur varðveitt rit Aristótelesar er Eðlisfræðin handrit að fyrirlestrum eða ritgerð sem var ekki ætluð til útgáfu. Það er einskonar forspjall að ritum Aristótelesar um náttúruheimspeki og náttúruvísindi. Eðlisfræðin fjallar einkum um aðferðafræðileg og heimspekileg atriði, fremur en eiginlega eðlisfræði eða náttúruspekilegar rannsóknir. Í ritinu leggur Aristóteles grunn að rannsóknum náttúruvísindamanna á efnisheiminum sem er undirorpinn hreyfingu og breytingu (kinesis).
- Þessi grein fjallar um rit eftir forngríska heimspekinginn Aristóteles. Um fræðigreinina, sjá „eðlisfræði“.