Diego Maradona
Argentínskur knattspyrnumaður og -stjóri (1960-2020) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Diego Armando Maradona (30. október 1960 – 25. nóvember 2020) var argentínskur knattspyrnumaður og að margra mati besti leikmaður sögunnar. Hann vann fjölda titla með félagsliðum sínum í Argentínu, Spáni og Ítalíu, auk þess að leiða þjóð sína til sigurs á HM 1986. Árið 2000 voru Maradona og Brasilíumaðurinn Pelé útnefndir bestu knattspyrnumenn 20. aldar af Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Á seinni hluta ferils síns átti Maradona við að etja ýmis vandamál sem tengdust ofneyslu eiturlyfja. Hann rataði ítrekað í fréttir vegna ummæla sinna eða skrautlegra uppátækja í seinni tíð. Maradona var síðast þjálfari argentínska félagsins Gimnasia de la Plata.
Staðreyndir strax Upplýsingar, Meistaraflokksferill1 ...
Diego Maradona | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Diego Armando Maradona | |
Fæðingardagur | 30. október 1960 | |
Fæðingarstaður | Lanús, Buenos Aires, Argentína | |
Dánardagur | 25. nóvember 2020 (60 ára) | |
Hæð | 1,65 m | |
Leikstaða | framsækinn miðherji, framherji | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1976-1981 | Argentinos Juniors | 167 (116) |
1981-1982 | Boca Juniors | 40 (28) |
1982-1984 | FC Barcelona | 36 (22) |
1984-1991 | SSC Napoli | 188 (81) |
1992-1993 | Sevilla FC | 26 (5) |
1993-1994 | Newell's Old Boys | 5 (0) |
1994-1997 | Boca Juniors | 30 (7) |
Landsliðsferill | ||
1977-1979 1977-1994 |
Argentína U-20 Argentína |
24 (13) 91 (34) |
Þjálfaraferill | ||
1994 1995 2008-2010 2011-2012 2017-2018 2018-2018 2019- |
Mandiyú de Corrientes Racing Club Argentína Al Wasl Al Fujairah Dorados Gimnasia de la Plata | |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Loka