Dauðarokk
From Wikipedia, the free encyclopedia
Dauðarokk er undirstefna þungarokksins. Dauðarokkið þróaðist út frá þrassi og fyrstu svartmálmshljómsveitanna á miðjum níunda áratugnum.
Dauðarokk | |
---|---|
Uppruni | Miður níundi áratugurinn: ![]() |
Hljóðfæri | Gítar, bassi og trommur |
Afbrigði | |
Melódískt dauðarokk Tæknilegt dauðarokk Dauðaþrass Mulningskjarni | |
Tengdar stefnur | |
svartmálmur þrass |
Dauðarokk er, í einfaldri mynd, öfgakennt þungarokk. Það einkennist af miklum bjögunarhljóm úr gíturunum, mjög hraðri endurtekinni skiptingu milli tveggja tóna (e. tremolo picking), djúpum öskrum söngvarans, mjög hröðum trommum, molltónum og oftar en ekki tóntegundaleysi (tónsmíði sem ekki byggist á tóntegund eða tóntegundum) og flóknum lögum með mörgum og flóknum taktbreytingum.
Frumkvöðlar stefnunnar eru taldir vera bandarísku hljómsveitirnar Death og Possessed en þær þróuðu tónlist sína út frá þrass- hljómsveitum á borð við Slayer og Kreator og frum-svartmálmshljómsveitum á borð við Celtic Frost og Venom. Hljómsveitirnar Obituary, Carcass, Deicide og Morbid Angel eru einnig taldar meðal frumkvöðla stefnunnar en hafa þó ekki haft jafn mikil áhrif og hinar fyrrnefndu.