![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/75/EuroDinamarca.svg/langis-640px-EuroDinamarca.svg.png&w=640&q=50)
Danmörk í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
yfirlit um þátttöku Danmerkur í Eurovision / From Wikipedia, the free encyclopedia
Danmörk hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 49 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 1957. Eftir að hafa keppt tíu sinnum í röð til ársins 1966, tók Danmörk ekki þátt í ellefu ár frá 1967 til 1977. Síðan 1978, hefur landið aðeins verið fjarverandi fjórum keppnum. Danmörk hefur unnið keppnina þrisvar sinnum: árin 1963, 2000 og 2013. Danska undankeppnin er Dansk Melodi Grand Prix.
Danmörk | |
---|---|
Sjónvarpsstöð | DR |
Söngvakeppni | Dansk Melodi Grand Prix |
Ágrip | |
Þátttaka | 49 (44 úrslit) |
Fyrsta þátttaka | 1957 |
Besta niðurstaða | 1. sæti: 1963, 2000, 2013 |
Núll stig | Aldrei |
Tenglar | |
Síða DR | |
Síða Danmerkur á Eurovision.tv |
Danmörk endaði í þriðja sæti í sinni fyrstu keppni árið 1957 með Birthe Wilke og Gustav Winckler, áður en landið vann í fyrsta sinn árið 1963 með laginu „Dansevise“ flutt af Grethe og Jørgen Ingmann. Landið komst aftur í topp-3 25 árum síðar með Hot Eyes árið 1988 og Birthe Kjær árið 1989. Eina skiptið sem landið náði topp-5 á 10. áratugnum var með flytjandanum Aud Wilken árið 1995.
Danmörk vann keppnina í annað skipti árið 2000 með Olsen bræðrunum og laginu „Fly on the Wings of Love“. Danmörk endaði svo í öðru sæti þegar landið hélt keppnina árið 2001 með „Never Ever Let You Go“ flutt af Rollo & King, áður en Malene Mortensen varð fyrsta framlag Danmerkur til að enda síðast árið 2002. Danmörk vann keppnina í þriðja sinn árið 2013 með laginu „Only Teardrops“ með flytjandanum Emmelie de Forest. Danmörk hefur endað í topp-5 fjórtán sinnum.