![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/61/Changsha-location-MAP-in-Hunan-Province-China.jpg/640px-Changsha-location-MAP-in-Hunan-Province-China.jpg&w=640&q=50)
Changsha
höfuðborg og fjölmennasta borg Hunan héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Changsha (kínverska: 长沙; rómönskun: Chángshā), er höfuðborg og fjölmennasta borg Hunan héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- og menningarmiðstöð héraðsins. Borgin er við Xiang-fljót og þaðan er nafn borgarinnar dregið („hinar löngu sandeyrar“). Hún er um 50 kílómetra suður af Dongting-vatni. Hún hefur mjög góðar vatnssamgöngur til suður- og suðvestur Hunan. Umbætur í efnahagsmálum Kína í átt til aukins markaðsbúskapar hafa kallað fram gríðarlegan hagvöxt í Changsha. Það hefur gert borgina að einni þróuðustu og blómlegustu borg Kína. Borgin er hátt skrifuð á sviði mennta, vísinda og rannsókna.
![Mynd frá Changsha borg í Hunan héraði í Kína.Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Changsha um 10,1 milljónir manna.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Changsha_2019_1.jpg/640px-Changsha_2019_1.jpg)
![Landakort sem sýnir legu Changsha borgar í Hunan héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/61/Changsha-location-MAP-in-Hunan-Province-China.jpg/640px-Changsha-location-MAP-in-Hunan-Province-China.jpg)
Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Changsha 5.630.000 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 10.047.914.