Selsíus eða Celsíus er hitakvarði, þar sem hiti er táknaður með °C eða (U+2103 í Unicode). Nefndur eftir sænska stjörnufræðingnum Anders Celsius, sem skilgreindi hann fyrst 1742. Kvarðinn er nú skilgreindur þannig að 0,01 °C samsvarar þrípunkti vatns og ein gráða á selsíus er 1/273,16 af muninum milli alkuls og þrípunkt vatns. Þessi skilgreining var tekin upp árið 1954 á 10. fundi Conférence Générale des Poids et Mesures, en á honum var einingin kelvin einnig skilgreind. Upprunalega var þó kvarðinn skilgreindur þannig að 100 °C samsvöruðu frostmarki vatns og 0 °C samsvöruðu suðumarki þess við, bæði við staðalþrýsting, þessu var breytt árið 1747 og kvarðanum snúið við þannig að 0 °C samsvöruðu frostmarkinu og 100 °C suðumarkinu.

Nánari upplýsingar Úr, í ...
Umbreytingarformúlur
Úr í Formúla
SelsíusFahrenheit°F = °C · 1,8 + 32
FahrenheitSelsíus°C = (°F – 32) / 1,8
SelsíusKelvinK = °C + 273,15
KelvinSelsíus°C = K – 273,15
1 °C = 1 K og 1 °C = 1,8 °F
Loka

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.