Bríet Bjarnhéðinsdóttir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bríet Bjarnhéðinsdóttir (27. september 1856 á Haukagili í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu – 16. mars 1940 í Reykjavík) var íslensk baráttukona fyrir réttindum kvenna, útgefandi og ritstjóri. Hún var kosin bæjarfulltrúi í bæjarstjórnarkosningunum í Reykjavík 1908 (sjá Kvennaframboð í Reykjavík 1908-1916). Hún bauð sig fram til Alþingis, fyrst kvenna. Hefði ekki verið fyrir ný lög um útstrikanir hefði Bríet orðið fyrsta konan til að taka sæti á Alþingi. Hún var gift Valdimari Ásmundssyni ritstjóra Fjallkonunnar. Á Kvenréttindadeginum, þann 19. júní 2011 var minning hennar formlega heiðruð af Reykjavíkurborg.[1]