![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9a/Dunkleosteus_terrelli_2.jpg/640px-Dunkleosteus_terrelli_2.jpg&w=640&q=50)
Brynháfar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Brynháfar (fræðiheiti: Placodermi) eru flokkur forsögulegra fiska sem voru uppi frá því seint á sílúrtímabilinu til loka devontímabilsins. Einkenni brynháfa voru margbrotnar brynplötur sem vörðu höfuð þeirra og frambol. Afgangurinn af skrokknum var ýmist ber eða með hreistur. Brynháfar voru með fyrstu kjálkadýrum jarðar. Kjálki þeirra þróaðist líklega út frá tálknbogum.
Staðreyndir strax Placodermi Tímabil steingervinga: Ár-/miðsílúr – síðdevon, Vísindaleg flokkun ...
Placodermi Tímabil steingervinga: Ár-/miðsílúr – síðdevon | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Dunkleosteus ræðst á Gorgonichthys | ||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||
| ||||||||||
Ættbálkar | ||||||||||
Antiarchi † | ||||||||||
Loka
Brynháfar eru rannsakaðir út frá steingervingum. Þeir voru ríkjandi tegund hryggdýra á devontímabilinu þegar þeir lifðu í sjó og vötnum um alla jörð.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist brynháfum.