Brjóstnál Palestrínu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Brjóstnál Palestrínu er gullin brjóstnál, sem í dag er geymd í hinu 'forsögulega þjóðarsafni Lúígí Pígoríní' (Museo Preistorico Etnografico Luigi Pigorini) í Róm. Skartgripur þessi ber áletrun á eldri latínu. Þegar brjóstnálin fannst seint á 18. öld var hún almennt viðurkennd sem elsta dæmi um latínu sem fundist hafði. Um þessa nál hefur nokkuð verið spekúlerað og tilgátur settar fram um að hún hafi verið fölsuð[1] en nýleg rannsókn gerð 2011 komst að þeirri niðurstöðu að hún væri ekta „fram yfir allan raunhæfan grun“.[2]