Brigitte Bierlein
Austurrískur dómari / From Wikipedia, the free encyclopedia
Brigitte Bierlein (25. júní 1949 – 3. júní 2024) var austurrískur dómari. Hún er fyrrum ríkissaksóknari við hæstarétt Austurríkis og var forseti stjórnlagadómstóls landsins frá 2018 til 2019.
Staðreyndir strax Kanslari Austurríkis, Forseti ...
Brigitte Bierlein | |
---|---|
Kanslari Austurríkis | |
Í embætti 3. júní 2019 – 7. janúar 2020 | |
Forseti | Alexander Van der Bellen |
Forveri | Sebastian Kurz |
Eftirmaður | Sebastian Kurz |
Forseti stjórnlagadómstóls Austurríkis | |
Í embætti 22. febrúar 2018 – 3. júní 2019 | |
Forveri | Gerhart Holzinger |
Eftirmaður | Christoph Grabenwarter |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 25. júní 1949 Vín, Austurríki |
Látin | 3. júní 2024 (74 ára) Vín, Austurríki |
Þjóðerni | Austurrísk |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundin |
Háskóli | Vínarháskóli |
Starf | Dómari |
Loka
Í lok maí árið 2019 skipaði Alexander Van der Bellen, forseti Austurríkis, Bierlein kanslara utanþingsstjórnar eftir að ríkisstjórn Sebastians Kurz sprakk í kjölfar hneykslismála. Áætlað var að hún yrði kanslari þar til nýjar kosningar voru haldnar í september.[1][2] Vegna langra stjórnarmyndunarviðræða gegndi hún embættinu fram í janúar 2020. Bierlein er fyrsta konan sem hefur orðið kanslari Austurríkis.[3]