Brasilískt jiu-jitsu
Brasilísk bardagalist leggur áherslu á bardaga og bardaga á jörðu niðri með rætur í japönskum júdó og jiu-jitsu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Brasilískt jiu-jitsu er íþrótt sem er best lýst sem gólfglímu. Lögð er áhersla á vogarafl umfram styrk en brasilískt jiu-jitsu er hannað fyrir veikari einstakling á móti stærri og sterkari. Það hentar því fólki af öllum stærðum og gerðum. Markmiðið er að ná yfirburðarstöðu gagnvart andstæðingnum og fá hann til að gefast upp með lás, svæfingu eða einhvers konar taki. Yfirburðarstaða telst þá einhvers konar staða þar sem andstæðingurinn getur ekki meitt mann en maður getur meitt andstæðinginn eða fengið hann á einhvern hátt til að gefast upp.