Bandarískur stjórnmálamaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Bernard „Bernie“ Sanders (fæddur 8. september 1941) er bandarískur stjórnmálamaður sem að er annar tveggja fulltrúa Vermont í öldungadeild Bandaríkjaþings.[1] Hann er óháður stjórnmálaflokkum en hefur jafnan kosið með Demókrataflokknum og situr í þingflokki þeirra. Sanders er þekktur fyrir vinstrisinnaðar skoðanir sínar og sósíalískar hugmyndir.
Bernie Sanders | |
---|---|
Öldungadeildarþingmaður fyrir Vermont | |
Núverandi | |
Tók við embætti 3. janúar 2007 | |
Forveri | Jim Jeffords |
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir Vermont | |
Í embætti 3. janúar 1991 – 3. janúar 2007 | |
Forveri | Peter Plympton Smith |
Eftirmaður | Peter Welch |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. september 1941 New York City, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn Demókrataflokkurinn (2015–2016; 2019–2020) |
Maki | Deborah Shiling (g. 1964; s. 1966) Jane O'Meara (g. 1988) |
Háskóli | Chicago-háskóli |
Undirskrift |
Sanders gaf kost á sér í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar 2016 en laut í lægra haldi fyrir Hillary Clinton. Hann hlaut 43.1% á meðan Clinton hlaut 55.2% atkvæða. Sanders gaf kost á sér á nýjan leik í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2020. Sanders vann sigur í fyrstu þremur ríkjunum þar sem forvalið var haldið en tapaði síðan þremur ríkjum gegn Joe Biden um miðjan mars. Sanders kom kosningabaráttu sinni ekki aftur á réttan kjöl og tilkynnti þann 8. apríl 2020 að hann hygðist hætta við framboð sitt.[2] Hann lenti aftur í öðru sæti með 26.2% á meðan Biden hlaut 51.7%.
Sanders var fulltrúardeildarþingmaður fyrir Vermont frá 1991 til 2007 sem óháður þingmaður. Í öldungadardeildarkosningunum í Vermont árið 2006 bauð hann sig fram sem óháður og vann með 65.4% atkvæða. Hann bauð sig aftur í fram í kosningunum árið 2012 og hlaut 71% atkvæða.[3] Hann bauð sig aftur fram í þriðja kjörtímabil sitt sem öldungardeildarþingmaður árið 2018 og hlaut 67.4% atkvæða. Í maí 2024 tilkynnti hann að hann myndi bjóða sig fram á ný í öldungardeildarkosningunum í Vermont sem að fara fram í nóvember 2024.[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.