Berlínarmúrinn
veggur sem skildi að Vestur-Berlín og Austur-Þýskaland (1961-1989) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Berlínarmúrinn (þýska Berliner Mauer) var 167,8 km langur múr sem skildi að Vestur-Berlín og Austur-Þýskaland. Hann var byggður árið 1961 og féll 9. nóvember 1989. Yfirvöld Austur-Þýskalands kölluðu hann fasistavarnarmúr (þýska: antifaschistischer Schutzwall).
Berlínarmúrinn var áberandi tákn um skiptingu Þýskalands og kalda stríðið. Ekki er vitað hversu margir létu lífið við að reyna að flýja yfir múrinn en talið er að það hafi verið 138 manns.