Bayeux-refillinn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bayeux-refillinn – (borið fram: bæjö-refillinn) – er 70 metra langt og um 50 cm breitt refilsaumað klæði, sem sýnir orrustuna við Hastings árið 1066. Veggrefillinn er varðveittur í safni skammt frá dómkirkjunni í Bayeux í Normandí, en var áður í dómkirkjunni þar.
Fyrir ofan stendur á latínu: ...UBI:NUNTII:WILLELMI:DU[CI]..
Þ.e.: „Þarna [koma] sendimenn Vilhjálms hertoga ...“