Áfengisbann
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár (eða 7 ár eftir því hvernig á málið er litið). Algjört áfengisbann gekk í gildi árið 1915. Bannið tók til þess að framleiða og selja áfenga drykki. Sala léttra vína var þó leyfð aftur árið 1922 (Spánarvín), en áfengisbannið var síðan afnumið alveg 1935. Bjór sem hafði verið leyfður fyrir 1915 var þó ekki leyfður aftur á Íslandi fyrr en 1. mars 1989. Þjóðaratkvæðagreiðslur voru haldnar um áfengisbann 1908 og 1933.
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Áfengisauglýsingar voru bannaðar á Íslandi með lögum frá árinu 1928 meðan áfengisbannið var enn í gildi. Áfengisbanninu var svo aflétt 7 árum seinna, en auglýsingabannið hefur haldist síðan.[1]