![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/70/Smallpox.jpg/640px-Smallpox.jpg&w=640&q=50)
Bólusótt
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bólusótt (á latínu Variola eða Variola vera) var bráðsmitandi sjúkdómur sem lagðist á fólk.[1] Talið er að sé búið að útrýma sóttinni. Tvær veirur geta valdið bólusótt, variola maior og variola minor. Variola maior er skæðari og dregur sjúklinginn til dauða í 3–35% tilvika. Á hinn bóginn er variola minor mildari og leiðir til dauða í innan við 1% tilvika.[2] Ör á húð eru dæmigerð fyrir þá sem fengið hafa bólusótt. Sjúkdómurinn getur leitt til blindu og ófrjósemi hjá körlum.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/70/Smallpox.jpg/640px-Smallpox.jpg)
Bólusótt olli dauða um 300–500 milljóna manna á 20. öld. World Health Organization (WHO) áætlar að 1967 hafi 15 milljónir smitast af sjúkdómnum og tvær milljónir látist. Í kjölfar bólusetningarherferða á 19. og 20. öld tókst að útrýma bólusótt árið 1979. Engum sjúkdóm hefur verið fullkomlega útrýmt síðan. Árangrinum er ekki síst að þakka því að aðeins ein veira eða tvær valda sjúkdómnum.