Argentína
land í Suður-Ameríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Argentína er land í sunnanverðri Suður-Ameríku. Það er næststærsta land álfunnar og það áttunda stærsta í heimi. Það afmarkast af Andesfjallgarðinum í vestri, Atlantshafi í austri og Drakesundi í suðri. Lönd, sem liggja að Argentínu eru Síle í vestri, Paragvæ og Bólivía í norðri, Brasilía og Úrúgvæ í norðaustri. Argentína gerir kröfu til Falklandseyja (sem Argentínumenn nefna Malvinaseyjar), Suður-Georgíu og Suður-Sandvíkureyja og loks til hluta af Suðurskautslandinu.
Staðreyndir strax
Argentínska lýðveldið | |
República Argentina | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: En Unión y Libertad (spænska) Samstaða og frelsi | |
Þjóðsöngur: Himno Nacional Argentino | |
Höfuðborg | Búenos Aíres |
Opinbert tungumál | Spænska |
Stjórnarfar | Sambandslýðveldi, forsetaræði |
Forseti | Javier Milei |
Varaforseti | Victoria Villarruel |
Sjálfstæði | frá Spáni |
• Lýst yfir | 9. júlí 1816 |
• Viðurkennt | 1821 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
8. sæti 2.780.400 km² 1,57 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
31. sæti 45.605.826 14,4/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 1.033 millj. dala (26. sæti) |
• Á mann | 22.997 dalir (56. sæti) |
VÞL (2019) | 0.845 (46. sæti) |
Gjaldmiðill | Pesói |
Tímabelti | UTC-3 |
Þjóðarlén | .ar |
Landsnúmer | +54 |
Loka