Antoni van Leeuwenhoek
From Wikipedia, the free encyclopedia
Antoni van Leeuwenhoek (24. október 1632 – 26. ágúst 1723) var hollenskur smásjársmiður og vísindamaður. Hann er þekktastur fyrir að hafa lýst örverum fyrstur manna og er því gjarnan sagður faðir örverufræðanna[1]. Hann var einnig fyrstur til að lýsa sæðisfrumum, byggingu vöðvatrefja, og blóðflæði í háræðum.
Staðreyndir strax Lífvísindi 17. öld, Nafn: ...
Lífvísindi 17. öld | |
---|---|
Nafn: | Antoni van Leeuwenhoek |
Fæddur: | 24. október 1632 í Delft í Hollandi |
Látinn | 26. ágúst 1723 í Delft í Hollandi |
Svið: | Örverufræði |
Helstu viðfangsefni: |
Smásjárskoðun, linsugerð |
Markverðar uppgötvanir: |
Örverur, Rauð blóðkorn |
Helstu ritverk: | Röð greina um smásjárskoðanir sem birtust í The Philosophical Transactions of the Royal Society á árunum frá 1673 til 1723. |
Loka