Angela Merkel
Kanslari Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Angela Dorothea Merkel (fædd 17. júlí 1954 í Hamborg í Þýskalandi), fædd Angela Dorothea Kasner, er þýskur stjórnmálamaður, eðlisfræðingur og fyrrverandi kanslari Þýskalands. Hún er dóttir Lútherstrúar-prests og kennslukonu. Hún ólst upp að mestu í Templin, litlum bæ í þáverandi Austur-Þýskalandi, 70 km norður af Berlín. Á árunum 1973 til 1978 nam hún eðlisfræði við Háskólann í Leipzig. Hún vann að doktorsverkefni sínu í kennilegri efnafræði í Berlín og kynntist þar núverandi eiginmanni sínum, prófessor Sauer. Hún komst á þýska þingið árið 1991 sem þingmaður Mecklenburg-Vorpommern.
Angela Merkel | |
---|---|
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 22. nóvember 2005 – 8. desember 2021 | |
Forseti | Horst Köhler Christian Wulff Joachim Gauck Frank-Walter Steinmeier |
Forveri | Gerhard Schröder |
Eftirmaður | Olaf Scholz |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 17. júlí 1954 (1954-07-17) (70 ára) Hamborg, Vestur-Þýskalandi (nú Þýskalandi) |
Þjóðerni | Þýsk |
Stjórnmálaflokkur | Kristilegi demókrataflokkurinn |
Maki | Ulrich Merkel (g. 1977; skilin 1982) Joachim Sauer (g. 1998) |
Háskóli | Háskólinn í Leipzig |
Verðlaun | Karlsverðlaunin (2008) Nansen-verðlaunin (2022) |
Undirskrift |
Hún varð formaður flokks Kristilegra demókrata (CDU) 10. apríl 2000 og gegndi formannsembættinu til 7. desember 2018. Merkel var kjörin kanslari Þýskalands af þýska sambandsþinginu 22. nóvember 2005. Sem ríkisstjórnarleiðtogi stærstu þjóðar innan Evrópusambandsins hafði Merkel mikil áhrif á viðbrögð Evrópumanna við evrópsku skuldakreppunni, evrópska flóttamannavandanum og alþjóðlega kórónaveirufaraldrinum. Merkel dró sig til hlés úr stjórnmálum að loknu fjórða kjörtímabili hennar og var ekki í framboði í þingkosningum ársins 2021.