spænskur knattspyrnumaður From Wikipedia, the free encyclopedia
Andrés Iniesta Lujan (fæddur 11. maí 1984) er spænskur fyrrum knattspyrnumaður. Hann spilaði lengst af sem miðjumaður fyrir FC Barcelona og landslið Spánar.
Andrés Iniesta | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Andrés Iniesta Luján | |
Fæðingardagur | 11. maí 1984 | |
Fæðingarstaður | Fuentealbilla, Spánn | |
Hæð | 1,70 m[1] | |
Leikstaða | Miðjumaður | |
Yngriflokkaferill | ||
1994–1996 1996–2001 |
Albacete Barcelona | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2001–2003 | Barcelona B | 54 (5) |
2002–2018 | Barcelona | 442 (35) |
2018-2023 | Vissel Kobe | 114 (21) |
2023-2024 | Emirates Club | 20 (5) |
Landsliðsferill | ||
2000–2001 2000–2001 2001–2002 2001–2002 2001–2002 2003–2004 2003–2006 2006–2018 2004–2005 |
Spánn U15 Spánn U16 Spánn U17 Spánn U18 Spánn U19 Spánn U20 Spánn U21 Spánn Katalónía |
2 (0) 7 (1) 4 (0) 1 (0) 7 (1) 7 (3) 18 (6) 131 (13) 2 (0) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Uppeldisfélag Iniesta var akademía Barcelona La Masia. Árið 2002 lék hann fyrsta leik sinn með aðalliðinu, 18 ára að aldri. Iniesta spilaði reglulega með liðinu frá 2004.
Hann spilaði fyrir unglingalandslið Spánar undir 16 ára, undir 19 ára og undir 21 árs, áður en hann lék sinn fyrsta leik með A-landsliðinu 2006. Iniesta var valinn á heimsmeistaramótið 2006 og 2010 sem og árin 2014 og 2018. Á heimsmeistaramótinu 2010 var hann valinn maður leiksins í úrslitaleik landsliðsins gegn Hollandi og skoraði hann sigurmarkið.
Árið 2018 ákvað Iniesta að kveðja Barcelona eftir 22 ár hjá félaginu. Hann hélt áfram að spila í nokkur ár í Japan og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann vann 34 titla á leikferli sínum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.