Amharar
Þjóðarbrot í Eþíópíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Amharar (amharíska: አማራ, amara, ge'ez: አምሐራ) eru þjóðarbrot í Eþíópíu sem búa aðallega í Amhara-héraði landsins og tala amharísku. Amharar eru um 20 milljónir talsins og eru um 20 % Eþíópíumanna. Þeir voru taldir næststærsti þjóðflokkurinn innan landsins í manntali árið 2007 á eftir Orómóum.[1]