![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/80/FIFA_Logo_%25282010%2529.svg/langis-640px-FIFA_Logo_%25282010%2529.svg.png&w=640&q=50)
Alþjóðaknattspyrnusambandið
alþjóðlegur yfirumsjónaraðili knattspyrnu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðaknattspyrnusambandið (franska: Fédération Internationale de Football Association, skammstöfun FIFA) er alþjóðlegur yfirumsjónaraðili knattspyrnu, futsal og strandfótbolta. Aðilar að sambandinu eru sex knattspyrnusambönd í öllum álfum heimsins.
Alþjóðaknattspyrnusambandið | |
---|---|
![]() | |
![]() Kort af álfusamböndum FIFA. | |
Skammstöfun | FIFA |
Einkennisorð | For the game. For the world. |
Stofnun | 21. maí 1904 (1904-05-21) (120 ára) |
Gerð | Íþróttasamtök |
Höfuðstöðvar | ![]() |
Hnit | 47°22′53″N 8°34′28″A |
Opinber tungumál | enska, franska, þýska, spænska |
Vefsíða | www.fifa.com |
FIFA skipuleggur alþjóðlegar knattspyrnukeppnir, þar á meðal Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Heimsmeistaramótið var fyrst haldið 1930 og var haldið í tuttugasta og fyrsta skipti í Rússlandi 2018.
Sambandið var stofnað 21. maí 1904 í París. Stofnfélagar voru knattspyrnusambönd Belgíu, Danmerkur, Frakklands, Hollands, Spánar, Svíþjóðar og Sviss. Höfuðstöðvar félagsins eru í Zürich, Sviss. 1908 varð Knattspyrnusamband Suður-Afríku fyrsta sambandið utan Evrópu sem sóttist eftir aðild. Núverandi forseti sambandsins er Gianni Infantino.