Alsír
land í Norður-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alsír er land á Magrebsvæðinu í Norður-Afríku. Landið stærsta ríki Afríku og Arabaheimsins og tíunda stærsta land heims. Það á landamæri að Túnis í norðaustri, Líbíu í austri, Níger í suðaustri, Malí, Máritaníu í suðvestri, og Marokkó og Vestur-Sahara í vestri. Alsír á strönd að Miðjarðarhafi í norðri. Loftslag í Alsír er hálfþurrt. Flestir landsmenn búa í frjósömum norðurhlutanum en megnið af suðurhlutanum er í Saharaeyðimörkinni. Íbúar eru rúmar 44 milljónir sem gerir Alsír að 9. fjölmennasta ríki Afríku. Höfuðborgin og stærsta borgin er Algeirsborg við strönd Miðjarðarhafsins.
Alþýðulýðveldið Alsír | |
الجمهورية الجزائرية الديمقراطية الشعبية Al-Jumhūrīyah al-Jazā’irīyah ad-Dīmuqrāţīyah ash-Sha’bīyah | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: بالشعب وللشعب (arabíska) Bylting fólksins fyrir fólkið | |
Þjóðsöngur: Kassaman | |
Höfuðborg | Algeirsborg |
Opinbert tungumál | arabíska, tamazight |
Stjórnarfar | Forsetaþingræði |
Forseti | Abdelmadjid Tebboune |
Forsætisráðherra | Aymen Benabderrahmane |
Stofnun | |
• undir Tyrkjaveldi | 1516 |
• undir Frakklandi | 1830 |
• sjálfstæði | 5. júlí 1962 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
10. sæti 2.381.741 km² 1,1 |
Mannfjöldi • Samtals (2021) • Þéttleiki byggðar |
32. sæti 44.700.000 17,7/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2021 |
• Samtals | 514,748 millj. dala (43. sæti) |
• Á mann | 11.433 dalir (111. sæti) |
VÞL (2019) | 0.748 (91. sæti) |
Gjaldmiðill | Dínar |
Tímabelti | UTC+1 |
Þjóðarlén | .dz |
Landsnúmer | +213 |
Alsír hefur verið hluti af fjölmörgum ríkjum, eins og Númidíu, Fönikíu, Rómaveldi, ríki Vandala, Austrómverska ríkinu, ríki Úmajada, Rustamída, Idrisída, Aglabída, Fatímída, Zirída, Hammadída, Almoravída, Zayyanída, Spánverja og Tyrkja. Landið varð að lokum hluti af Nýlenduveldi Frakka áður en það fékk sjálfstæði árið 1962 eftir vopnuð átök. Mikill meirihluti íbúa Alsír eru arabískir Berbar sem aðhyllast íslam og tala arabísku og berbísk mál. Franska er enn notuð sem menntamál og sum staðar í stjórnsýslunni, en alsírsk arabíska er algengasta talmálið í landinu.
Alsír býr við forsetaþingræði. Landið skiptist í 58 sýslur og 1.541 sveitarfélög. Það er stórveldi í Norður-Afríku og miðveldi á heimsvísu. Vísitala um þróun lífsgæða er þar hæst af öllum löndum meginlands Afríku. Hagkerfi Alsír er eitt af þeim stærstu í álfunni og byggist að stórum hluta á útflutningi jarðolíu. Alsír á 16. mestu olíubirgðir heims og 9. stærstu gasbirgðirnar. Ríkisrekna olíufyrirtækið Sonatrach er stærsta fyrirtæki Afríku, og selur mikið magn jarðgass til Evrópu. Her Alsírs er einn af stærstu herjum Afríku og sá best fjármagnaði. Alsír er aðili að Afríkusambandinu, Arababandalaginu, Samtökum olíuframleiðsluríkja og Sameinuðu þjóðunum, og stofnaðili að Magrebbandalaginu.