Alfredo Stroessner
Einræðisherra í Paragvæ (1912-2006) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alfredo Stroessner Matiauda (3. nóvember 1912 – 16. ágúst 2006) var einræðisherra sem réð yfir Paragvæ frá 1954 til 1989. Hann tók við völdum eftir að hafa leitt valdarán gegn ríkisstjórn landsins árið 1954 og var sjálfum steypt af stóli í herforingjabyltingu árið 1989. Stroessner réð yfir Paragvæ í 35 ár og valdatíð hans var því sú lengsta í nútímasögu Suður-Ameríku.
Staðreyndir strax Forseti Paragvæ, Forveri ...
Alfredo Stroessner | |
---|---|
Forseti Paragvæ | |
Í embætti 15. ágúst 1954 – 3. febrúar 1989 | |
Forveri | Tomás Romero Pereira (til bráðabirgða) |
Eftirmaður | Andrés Rodríguez |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. nóvember 1912 Encarnación, Paragvæ |
Látinn | 16. ágúst 2006 (93 ára) Brasilíu, Brasilíu |
Þjóðerni | Paragvæskur |
Stjórnmálaflokkur | Rauði flokkurinn |
Maki | Eligia Mora |
Börn | 3 |
Háskóli | Francisco López-hernaðarakademían |
Loka