![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4c/Dub%25C4%258Dek_in_1990_%2528Fortepan_138485%2529.jpg/640px-Dub%25C4%258Dek_in_1990_%2528Fortepan_138485%2529.jpg&w=640&q=50)
Alexander Dubček
Ritari Kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu (1921-1992) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alexander Dubček (27. nóvember 1921 – 7. nóvember 1992) var slóvakískur stjórnmálamaður sem var leiðtogi Kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu frá janúar 1968 þar til í apríl 1969. Dubček reyndi að koma á umbótum í kommúnistastjórn Tékkóslóvakíu á stuttu tímabili sem kallað er vorið í Prag en neyddist til að segja af sér þegar þjóðir Varsjárbandalagsins gerðu innrás í Tékkóslóvakíu árið 1968. Stefna Dubčeks hafði verið að koma á „sósíalisma með mannlegri ásjónu“ en umbætur hans í þá átt fóru mjög fyrir brjóstið á stalínistum í Tékkóslóvakíu og í Sovétríkjunum.
Staðreyndir strax Fyrsti ritari Kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu, Forveri ...
Alexander Dubček | |
---|---|
![]() Alexander Dubček árið 1990. | |
Fyrsti ritari Kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu | |
Í embætti 5. janúar 1968 – 17. apríl 1969 | |
Forveri | Antonín Novotný |
Eftirmaður | Gustáv Husák |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. nóvember 1921 Uhrovec, Tékkóslóvakíu (nú Slóvakíu) |
Látinn | 7. nóvember 1992 (70 ára) Prag, Tékkóslóvakíu (nú Tékklandi) |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Tékkóslóvakíu (1948–1970) Jafnaðarmannaflokkur Slóvakíu (1992) |
Verðlaun | Sakharov-verðlaunin (1989) |
Undirskrift | ![]() |
Loka