Alþjóðasamtök lækna gegn kjarnorkuvá
From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðasamtök lækna gegn kjarnorkuvá (enska: International Physicians for the Prevention of Nuclear War eða IPPNW) eru félagasamtök lækna, læknanema og heilbrigðisstarfsmanna í 63 löndum sem helga sig „fræðslu almennings um afleiðingar kjarnorkustríðs og getuleysi almannavarna og heilbrigðisþjónustunnar ef til slíks stríðs kæmi“.[1] Höfuðstöðvar samtakanna eru í bænum Malden í Massachusetts. Samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 1985.[2][3]
Alþjóðasamtök lækna gegn kjarnorkuvá International Physicians for the Prevention of Nuclear War | |
---|---|
Skammstöfun | IPPNW |
Stofnun | 1980; fyrir 44 árum (1980) |
Höfuðstöðvar | Malden, Massachusetts, Bandaríkjunum |
Vefsíða | www.ippnw.org |
Aðildarfélög IPPNW eru ýmis innlend læknasamtök sem eiga það sameiginlegt að berjast fyrir eyðingu kjarnavopna og gegn kjarnorkustríði. Aðildarhóparnir eru margvíslegir að stærð; allt frá fámennum hópum lækna og læknanema upp í samtök sem telja til sín tugþúsundir meðlima og stuðningsmanna. Þar sem aðildarhóparnir eru sjálfstæð félög innan alþjóðlegra félagasamtaka vinna þau að ýmsum málefnum sem snerta meðal annars stríð, heilsugæslu, samfélagsréttlæti og náttúruvernd.