![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/76/Flag_of_UPU.svg/langis-640px-Flag_of_UPU.svg.png&w=640&q=50)
Alþjóðapóstsambandið
alþjóðastofnun og ein sérstofnana Sameinuðu þjóðanna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðapóstsambandið (UPU), sem er alþjóðastofnun og ein sérstofnana Sameinuðu þjóðanna, samhæfir póststefnu 192 þátttökuríkja, staðfestir alþjóðlegar reglugerðir um póstþjónustu, veitir tæknilega aðstoð og stuðlar að samstarfi um hvaðeina er lýtur að póstþjónustu.[1] Það hefur einnig umsjón með fjarvirkni og hraðpóstþjónustu. Öll aðildarríki sambandsins, samþykkja sömu skilmála fyrir framkvæmd alþjóðlegra póstskyldna.
Alþjóðapóstsambandið | |
---|---|
![]() Merki Alþjóðapóstsambandsins | |
![]() Sérstofnun Sameinuðu þjóðanna | |
Skammstöfun | UPU (enska) |
Stofnun | 9. október 1874 |
Gerð | Milliríkjastofnun |
Höfuðstöðvar | Bern, Sviss |
Opinber tungumál | franska og enska |
Forstjóri | Masahiko Meteko |
Móðurfélag | Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna |
Vefsíða | www.upu.int |
Sambandið var stofnað með Bernarsáttmálanum árið 1874 í því skyni að að móta alþjóðlegar reglur í póstmálum en áður var einungis um að ræða tvíhliða samninga milli þjóða.[2] Höfuðstöðvar Alþjóðapóstsambandsins eru í Bern í Sviss. Opinbert tungumál sambandsins var upphaflega franska en ensku var bætt við árið 1994.
Ísland er aðili að Alþjóðapóstsambandinu, en því fylgja aðeins þær skyldur, að taka þátt í bréfaþjónustunni. Ríkjum er frjálst er að gerast aðili að samningum um verðbréf, böggla, póstávísanir, póstkröfur, gíróþjónustu, póstsparibankaþjónustu og póstáskriftir að blöðum.[3]