Afríkanska (afríkanska: Afrikaans) er vesturgermanskt og indóevrópskt tungumál sem er talað í Suður-Afríku og Namibíu. Hún er opinbert tungumál í Suður-Afríku og er töluð af yfir 16 milljónum manna. Afríkanska hefur þróast úr hollensku. Orðið Afrikaans þýðir hollenska sem er töluð í Afríku eða bara afríkanska. Fólk sem talar afríkönsku skilur hollensku. Á afríkönsku er IJ úr hollensku breytt í Y. (dæmi: hol: IJslands, afr: Yslands). Munurinn á afríkönsku og hollensku felst í ýmsum atriðum í málfræði og stafsetningu. Afríkanska hefur dreifða landfræðilega notkun sem opinbert tungumál, auk þess að vera töluð víða sem annað eða þriðja tungumál.

Staðreyndir strax Afríkanska Afrikaans, Opinber staða ...
Afríkanska
Afrikaans
Málsvæði Suður-Afríka
Heimshluti Sunnanverð Afríka
Fjöldi málhafa 16 milljónir
Ætt Indóevrópskt

 Germanskt
  Vesturgermanskt
   Lággermanskt
    Lágfrankískt
     afríkanska

Skrifletur Latneskt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Suður-Afríka
Stýrt af Die Taalkommissie
Tungumálakóðar
ISO 639-1af
ISO 639-2afr
SILAFR
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.
Loka

Það eru þrjár mállýskur í afríkönsku. Höfðaborg er sú borg í Suður-Afríku þar sem flest fólk hefur afríkönsku að móðurmáli og er afríkanska algengasta tungumálið þar.

Þrátt fyrir að hollenska og afríkanska séu gagnkvæmt skiljanlegar og því ef til vill réttlætanlegt að nefna hana hollenska mállýsku er nokkur málfræðimunur. Þannig hefur til dæmis málfræðileg afkynjun nafnorða átt sér stað í afríkönsku en hollenska hefur hvorugkyn og samkyn. Í hollensku teljast um 90 % nafnorða til samkyns þar sem greinirinn -de er notaður, en um 10 til hvorugkyns þar sem greinirinn -het er notaður. (het alfabet, de telegraf).

Het er sama orð og íslenska hið og enska it. Í afríkönsku enfaldlega var sett -de í staðinn fyrir -het og þar með einfölduð málfræðin. Sagnorð hafa engar persónuendingar og munur veikra og sterkra sagna er horfinn.

Nokkrar setningar og orð

Nánari upplýsingar Afrikaans, Íslenska ...
AfrikaansÍslenska
HalloHalló
GoeiedagGóðan daginn
GoeienaandGott kvöld
Hoe gaan dit met jou?Hvað segirðu gott?
Dit gaan goed met my.Ég segi bara fínt
DankieTakk
AssebliefGerðu svo vel
Ja
NeeNei
Praat jy Yslands?Talarðu íslensku?
Ek praat net 'n bietjie Afrikaans.Ég tala bara smá afríkönsku.
Ek verstaan nie.Ég skil ekki.
My naam is ...Ég heiti ...
Tot siensBless
Loka

Tenglar

Nánari upplýsingar Germönsk tungumál Indóevrópsk tungumál ...
Loka
Staðreyndir strax
Wikipedia
Wikipedia
Wikipedia: Afríkanska, frjálsa alfræðiritið
Loka

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.