Abdulrazak Gurnah
Tansanskur rithöfundur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Abdulrazak Gurnah (f. 20. desember 1948[1]) er tansanískur rithöfundur sem skrifar á ensku og býr í Bretlandi. Frægustu skáldsögur hans eru Paradise (1994), sem var tilnefnd bæði til Booker-verðlaunanna og Whitbread-verðlaunanna, Desertion (2005) og By the Sea (2001), sem var tilnefnd til Booker-verðlaunanna og til bókaverðlauna Los Angeles Times.[2] Gurnah hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2021 fyrir að hafa „staðfastlega og með mikilli samkennd afhjúpað afleiðingar nýlendustefnunnar í Austur-Afríku og áhrif hennar á líf rótlausra og brottfluttra einstaklinga“.[3]
Staðreyndir strax Fæddur:, Þjóðerni: ...
Fæddur: | 20. desember 1948 (1948-12-20) (75 ára) Soldánsdæminu Sansibar |
---|---|
Þjóðerni: | Tansanískur |
Þekktasta verk: | Paradise (1994) By the Sea (2001) Desertion (2005) |
Loka