Þyri Danabót

From Wikipedia, the free encyclopedia

Þyri Danabót

Þyri Danabót var dönsk drottning. Hún er talið hafa verið drottning í kringum 935 til 950. Hún var gift Gormi hinum gamla. Sonur hennar var Haraldur blátönn. Nafn hennar kemur fyrir í texta sem er ristur með rúnaletri á tvo steina sem kallast Jalangurssteinarnir. Þessir steinar hafa verið nefndir skírnarvottorð Danmerkur vegna þess að þar kemur í fyrsta skipti fyrir nafn Danmerkur í texta sem er ritaður í Danmörku og á norrænu máli. Minni steinninn er minnisvarði sem Gormur konungur reisti fyrir konu sína Þyri og stærri Jalangurssteinninn er steinn sem Haraldur blátönn reisti til minningar um foreldra sína.

Thumb
Báðir Jalangurssteinarnir.
Thumb
Teikning sem sýnir Þyri Danabót leggja grunn að Danavirki. Fornleifarannsóknir á Danavirki hafa þó sýnt að það stenst ekki, byrjað var á Danavirki mörgum öldum fyrir valdatíð Þyri drottningar.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.