Colin Powell
Bandarískur hershöfðingi og utanríkisráðherra / From Wikipedia, the free encyclopedia
Colin Luther Powell (f. 5. apríl 1937, d. 18. október 2021) var bandarískur stjórnmálamaður og fyrrum fjögurrastjörnuhershöfðingi í Bandaríkjaher. Á hernaðarferli sínum var Powell meðal annars þjóðaröryggisráðgjafi[1] (1987–1989) og forseti herforingjaráðs Bandaríkjahers[2] frá 1989 til 1993, í stjórnartíð George H. W. Bush. Powell gegndi þessu embætti á meðan Bandaríkjamenn háðu fyrra Persaflóastríðið. Powell er fyrsti og hingað til eini maðurinn af jamaískum ættum sem hefur tekið sæti í herforingjaráðinu. Powell varð síðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna í stjórnartíð George W. Bush frá 2001 til 2005, fyrstur blökkumanna.
Colin Powell | |
---|---|
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 2001 – 26. janúar 2005 | |
Forseti | George W. Bush |
Forveri | Madeleine Albright |
Eftirmaður | Condoleezza Rice |
Forseti herforingjaráðs Bandaríkjahers | |
Í embætti 1. október 1989 – 30. september 1993 | |
Forseti | George H. W. Bush Bill Clinton |
Forveri | William J. Crowe |
Eftirmaður | John Shalikashvili |
Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna | |
Í embætti 23. nóvember 1987 – 20. janúar 1989 | |
Forseti | Ronald Reagan |
Forveri | Frank Carlucci |
Eftirmaður | Brent Scowcroft |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 5. apríl 1937(1937-04-05) New York-borg, New York, Bandaríkjunum |
Látinn | 18. október 2021 (84 ára) Bethesda, Maryland, Bandaríkjunum |
Dánarorsök | COVID-19 |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn (1995–2021) |
Maki | Alma Johnson (g. 1962) |
Háskóli | Borgarháskóli New York George Washington-háskóli |
Starf | Herforingi, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Powell hefur hlotið fjölda hernaðarverðlauna og -viðurkenninga bæði í Bandaríkjunum og erlendis. Meðal borgaralegra verðlauna sem Powell hefur hlotið má einnig nefna tvær frelsisorður Bandaríkjaforseta, borgaraorðu forsetans, gullorðu Bandaríkjaþings og orður fyrir afrek í embætti utanríkisráðherra.