![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bb/%25C3%259EorhallurBjarnarsonbiskup.png/640px-%25C3%259EorhallurBjarnarsonbiskup.png&w=640&q=50)
Þórhallur Bjarnarson
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þórhallur Bjarnarson (2. desember 1855 - 15. desember 1916) var biskup íslensku Þjóðkirkjunnar frá 1908 til 1916 og alþingismaður.
![Þórhallur Bjarnarson](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bb/%C3%9EorhallurBjarnarsonbiskup.png/320px-%C3%9EorhallurBjarnarsonbiskup.png)
Hann var fæddur í Laufási við Eyjafjörð, sonur séra Björns Halldórssonar og konu hans Sigríðar Einarsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1877 og guðfræðiprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1883. Hann var prestur í Reykholti og prófastur í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 1884 til 1885. Fékk Akureyri í brauðaskiptum við séra Guðmund Helgason 1885. Varð kennari við Prestaskólann 1885 og forstöðumaður hans 1894. Hann var alþingismaður Borgfirðinga 1894-1900 og 1902-1908, fyrst utanflokka en síðan fyrir Heimastjórnarflokkinn. Einnig sat hann í bæjarstjórn Reykjavíkur 1888-1906. Árið 1908 var hann skipaður biskup yfir Íslandi og gegndi því embætti til dauðadags.
Þórhallur bjó lengst af í Laufási við Laufásveg í Reykjavík og rak þar blómlegan búskap. Kona hans var Valgerður Jónsdóttir (27. janúar 1863 - 28. janúar 1913), fósturdóttir Tryggva Gunnarssonar bankastjóra og alþingismanns. Börn þeirra voru Tryggvi forsætisráðherra, Svava, Björn og Dóra, kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta Íslands.