![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a2/CityPop_PercUrban-2018.png/640px-CityPop_PercUrban-2018.png&w=640&q=50)
Þéttbýlismyndun
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þéttbýlisvæðing er hlutfallsleg fjölgun íbúa í þéttbýli á kostnað dreifbýlis og þær samfélagslegu áskoranir sem því fylgja. Þéttbýlismyndun á sér stað þegar byggðakjarnar myndast og vaxa og fólk fer í auknum mæli að búa og vinna í þessum kjörnum. Þéttbýlisvæðing getur stafað af fólksflutningum úr dreifbýli í þéttbýli eða hlutfallslega meiri fjölgun íbúa í þéttbýli miðað við dreifbýli. Með þéttbýlisvæðingu verða borgir og bæir til og stækka sem miðstöðvar atvinnulífs og stjórnsýslu. Samkvæmt spá Sameinuðu þjóðanna bjó yfir helmingur íbúa heimsins í þéttbýli frá og með árinu 2008. Búist er við að þetta hlutfall muni fara í 68% í þróunarlöndum og 86% í þróuðum löndum fyrir árið 2050.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a2/CityPop_PercUrban-2018.png/640px-CityPop_PercUrban-2018.png)
Þéttbýlismyndun er náskyld öðrum félagslegum ferlum eins og nútímavæðingu, iðnvæðingu og hagræðingu. Hún nær yfir nokkrar ólíkar fræðigreinar eins og landfræði, félagsfræði, hagfræði og skipulagsfræði. Þéttbýlismyndun hefur í för með sér félagslegar, efnahagslegar og umhverfistengdar breytingar sem bjóða upp á fleiri tækifæri fyrir sjálfbærni með hagkvæmari notkun á auðlindum og landi.
Þéttbýlismyndun er ekki nútímafyrirbæri, heldur á hún rætur sínar að rekja til sögulegrar þróunar á stórum mælikvarða þar sem dreifbýlislífmynstur skiptast út fyrir þéttbýlislífsmynstur. Þróunin byrjaði fyrir þúsundum ára þegar veiðimenn og safnarar byrjuðu að safnast saman í þorpum. Þorpslífið einkennist af nánum erfðasamböndum, nánum félagslegum tengslum og sameiginlegri hegðun, en borgarlífið einkennist aftur á móti af fjarlægum erfðasamböndum, miklum samskiptum við ókunnugt fólk og samkeppni á milli einstaklinga.