![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/57/Runensteine_Gorm_Blauzahn.jpg/640px-Runensteine_Gorm_Blauzahn.jpg&w=640&q=50)
Þyri Danabót
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þyri Danabót var dönsk drottning. Hún er talið hafa verið drottning í kringum 935 til 950. Hún var gift Gormi hinum gamla. Sonur hennar var Haraldur blátönn. Nafn hennar kemur fyrir í texta sem er ristur með rúnaletri á tvo steina sem kallast Jalangurssteinarnir. Þessir steinar hafa verið nefndir skírnarvottorð Danmerkur vegna þess að þar kemur í fyrsta skipti fyrir nafn Danmerkur í texta sem er ritaður í Danmörku og á norrænu máli. Minni steinninn er minnisvarði sem Gormur konungur reisti fyrir konu sína Þyri og stærri Jalangurssteinninn er steinn sem Haraldur blátönn reisti til minningar um foreldra sína.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/57/Runensteine_Gorm_Blauzahn.jpg/640px-Runensteine_Gorm_Blauzahn.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8b/Thyra_Danebod.gif/640px-Thyra_Danebod.gif)