Sagan um hina fornu konunga Noregs (latína: Historia de Antiquitate Regum Norwagiensium), er yfirlitsrit um sögu Noregs frá Haraldi hárfagra, um 871, fram til þess að Haraldur gilli tók við völdum, um 1130. Sagan var rituð á latínu á árabilinu 1178 til 1188 og er því með elstu konungasögum sem varðveist hafa. Höfundurinn kallar sig Theodoricus monachus eða Þjóðrek munk, og kveðst hann aðallega byggja ritið á íslenskum heimildum.
Þó að höfundurinn sé hér kallaður Þjóðrekur munkur, er líklegra að hann hafi heitið Þórir. Hann var Norðmaður og var munkur af Benediktsreglu (monachus), e.t.v. í klaustrinu á Niðarhólmi í Þrándheimi. Ekki hefur tekist að tengja hann með vissu við menn sem báru það nafn, en nefna má tvær tilgátur. Að um sé að ræða Þóri sem var biskup í Hamri 1190–1196, og hins vegar að átt sé við Þóri Guðmundsson erkibiskup í Niðarósi 1206–1214. Báðir bera nafnið Theodoricus í heimild frá St. Victors-klaustrinu í París. Þeir voru hins vegar báðir af Ágústínusarreglu og hefðu tæplega kallað sig monacus.
Verk Þjóðreks munks telst til elstu yfirlitsrita um sögu Noregs; hin eru Historia Norwegiae og Ágrip af Noregskonungasögum.
Útgáfur og þýðingar
- Gustav Storm (útg.): Monumenta historica Norvegiæ: Latinske kildeskrifter til Norges historie i middelalderen, Kristiania 1880.
- Guðmundur J. Guðmundsson (þýð.): Sagan um hina fornu konunga Noregs, eftir Þjóðrek munk, ásamt Íslandskaflanum úr Historia Norwegiae, Sæmundur, Selfossi 2016.
- Theodoricus monachus: The Ancient History of the Norwegian Kings. Viking Society for Northern Research, London 1998. – David og Ian McDougall þýddu og sömdu skýringar, inngangur eftir Peter Foote. ISBN=0-903521-40-7.
Tenglar
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „Theodoricus monachus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. september 2016.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.