Þeófrastos
forngrískur heimspekingur og vísindamaður (370 — 285 f.Kr.) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þeófrastos (forngrísku Θεόφραστος, fæddur Týrtamos, 370 — um 285 f.Kr.) var forngrískur heimspekingur og vísindamaður frá Eressos á eynni Lesbos. Hann var nemandi Aristótelesar og eftirmaður hans í skólanum Lýkeion í Aþenu. Allt sem vitað er um ævi Þeófrastosar byggir á ævisögu hans sem rituð er af Díogenesi Laertíosi tæplega fimm hundruð árum eftir andlát Þeófrastosar.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9a/Theophrastus_%28cropped%29.jpg/195px-Theophrastus_%28cropped%29.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9b/Theophrastus_-_Historia_plantarum%2C_1549_-_3034262.tif/lossy-page1-640px-Theophrastus_-_Historia_plantarum%2C_1549_-_3034262.tif.jpg)