Ölfusá
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ölfusá er vatnsmesta á Íslands með meðalrennsli upp á 423 m³/sek. Ölfusá myndast milli Grímsness og Hraungerðishrepps úr Soginu og Hvítá og er 25 km löng frá upptökum til ósa vestan Eyrarbakka. Hún fellur niður með vesturjaðri Þjórsárhrauns. Áin er jökullituð og rennur í gegnum Selfoss í djúpri gjá sem talin er vera 9 m djúp. Þótt áin hafi jökulársvip er mikið af lindarvatni í henni og í kuldatíð getur hún orðið nánast tær. Í Ölfusi myndar áin mikið stórt stöðuvatn eða sjávarlón, Ölfusárós, áður en hún rennur út í sjó austan við Óseyri.
Staðreyndir strax Staðsetning, Land ...
Ölfusá | |
---|---|
Staðsetning | |
Land | Ísland |
Einkenni | |
Uppspretta | ármót Hvítár og Sogs |
Hnit | 63°59′20″N 20°57′49″V |
Árós | |
• staðsetning | hjá Óseyrartanga |
Lengd | 185 km með Hvítá, 25 km án hennar |
Vatnasvið | 5.760 ferkílómetri |
Rennsli | |
• miðlungs | um 400 m3/sec |
breyta upplýsingum |
Loka