Ákveðin lýsing
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ákveðin lýsing er orðasamband á forminu „X“ eða „X'ið“ þar sem X vísar til eins tiltekins einstaklings, hlutar eða heildar sem það lýsir. Til dæmis eru „hæsti nemandinn í bekknum“, „fyrsti apinn í geimnum“, „42. forseti Bandaríkjanna“ og svo framvegis ákveðnar lýsingar.
Lýsingin núverandi konungur Frakklands er sígilt dæmi um ákveðna lýsingu sem vísar ekki til neins. Breski heimspekingurinn Bertrand Russell var fyrstur til þess að benda á vandann sem slík lýsing getur skapað í formlegri rökfræði og reyndi að bregðast við vandanum.