Remove ads
Frumefni með efnatáknið Y og sætistöluna 39 From Wikipedia, the free encyclopedia
Yttrín (eftir sænska bænum Ytterby) er frumefni með efnatáknið Y og er númer 39 í lotukerfinu. Yttrín er silfraður, málmkenndur hliðarmálmur. Það er algengt í lantaníðagrýti en finnst aldrei í hreinu formi. Eina stöðuga samsæta yttríns, 89Y, er líka sú eina sem finnst í náttúrunni.
Skandín | |||||||||||||||||||||||||
Strontín | Yttrín | Sirkon | |||||||||||||||||||||||
Lantan | |||||||||||||||||||||||||
|
Tvö efnasambönd þess eru notuð í ljómefni til að gera rauða litinn í litasjónvörpum og ljóstvistum. Yttrín er líka notað í rafskaut, raflausnir, rafsíur, leysigeislatæki og ofurleiðara.
Yttrín er gljáandi, silfurlitur, kristallskenndur málmur. Það er fyrsti málmurinnn í fjórðu lotu d-blokk lotukerfisins.
Hreinn yttrínmassi er tiltölulega stöðugur vegna oxíðfilmu (Y2O3) sem myndast utaná honum. Fínrifið yttrín er hins vegar mjög óstöðugt og hvarfast auðveldlega við loft. Yttrínsvarf getur brunnið fyrirvaralaust með snertingu við loft í yfir 400 °C hita.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.