Bandarískt skáld, blaðamaður og húmanisti (1819-1892) From Wikipedia, the free encyclopedia
Walter „Walt“ Whitman (31. maí 1819 – 26. mars 1892) var bandarískt skáld, blaðamaður og húmanisti sem fæddist á Long Island í New York. Frægustu verk hans eru ljóðasöfnin Grasblöðin (Leaves of Grass) og Drum-Taps. Hann hóf feril sinn sem blaðamaður og ritstjóri. Hann missti vinnu sína sem ritstjóri á Daily Eagle vegna andstöðu sinnar við þrælahald og gaf eftir það sjálfur út safnið Grasblöðin sem hann átti síðar eftir að breyta og bæta við fyrir nýjar útgáfur nánast alla ævina. Grasblöðin komu út á íslensku í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar 1994 og endurútgefinn 2002 en nefnist bókin Söngurinn um sjálfan mig.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.