Viðtæki
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Viðtæki er tæki sem tekur á móti útvarpsbylgjum og breytir þeim í gagnlegar upplýsingar. Viðtæki er notað ásamt loftneti. Loftnetið fangar útvarpsbylgjur og breytir þeim í riðstraum sem er þá sendur áfram til viðtækisins. Viðtækið síar útvarpsbylgjurnar þannig að aðeins bylgjum á óskaðri útvarpstíðni er breytt í merki. Merkið er þá magnað og óskaðar upplýsingar eru þá unnar úr því með afmótun.
Upplýsingarnar sem viðtæki sendir frá sér getur verið hljóð, mynd eða gögn. Viðtæki getur verið aðskilið tæki eða innbyggt í öðrum tækjum. Tæki sem eru með viðtækjum eru meðal annars sjónvörp, ratsjár, farsímar, þráðlaus tölvunet, GPS-tæki, gervihnattadiskar, útvarpssjónaukar og barnatalstöðvar.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.